Erlent

Barnabarn Manson fær lík hans

Samúel Karl Ólason skrifar
Charles Manson í desember 1969.
Charles Manson í desember 1969. Vísir/Getty
Dómari í Bandaríkjunum hefur ákveðið að Jason Freeman, barnabarn Charles Manson, mun fá líka hans sem hefur verið á ís í fjóra mánuði. Fjórir aðilar sóttust eftir líki Manson sem er einn alræmdasti glæpamaður í sögu Bandaríkjanna, og lést á sjúkrahúsi í Corcoran-fangelsinu í nóvember. Þar hafði hann setið inni í tæp 30 ár.



Árið 1969 leiddi Charles Manson hóp fólks sem fylgdi honum í einu og öllu. Í ágúst það ár fóru fylgjendur Manson á kreik og myrtu sjö manns hrottalega á tveimur dögum.

Meðal fórnarlamba Manson og fylgjenda hans var leikkonan Sharon Tate, sem þá var komin átta mánuði á leið. Fjórir gestir hennar voru einnig myrtir á heimili hennar og leikstjórans Roman Polanski. Seinna kvöldið myrti hópurinn verslunareigandann Leno LaBianca og eiginkonu hans, Rosemary.

Sjá einnig: Hvar eru hinir meðlimir „Manson-fjölskyldunnar“?



Einn aðilinn sem sóttist eftir líki Manson var safnarinn Michael Channels. Sá var vinur Manson og skrifuðust þeir reglulega á. Annar var Michael Brunner sem er sonur Manson. Matthew Lentz vildi einnig fá líkið en hann hélt því einnig fram að hann væri sonur Manson. Að endingu var það Jason Freeman, barnabarn Manson, sem fékk líkið.

Channels var með erfðaskrá sem skrifað var undir í febrúar 2002. Dómarinn úrskurðaði hana þó ógilda þar sem Channels sjálfur hafði vottað hana og það fjórum dögum áður en að Manson átti að hafa skrifað undir hana. Hann var ósáttur við niðurstöðu dómarans og sagðist einungis hafa viljað dreifa ösku Manson í eyðimörkinni, eins og hann hefði sjálfur viljað.



Lentz sagðist hafa verið getinn af Manson í kynsvalli árið 1967 og að móðir hans, Terry Bruegger, hefði gefið hann frá sér viku eftir fæðingu hans. Hann var þó ekki með neinar sannanir fyrir því og hafði ekki tekið DNA-próf.

Manson eignaðist Brunner með Mary Brunner sem var meðlimur „fjölskyldu“ hans. Hann var þó ættleiddur af foreldrum móður sinnar og hafði því ekki rétt á því að erfa Manson.

Því fór líkið til Freeman.

Sjá einnig: Morðinginn sem drap aldrei neinn



Freeman er eina barn sonar Manson, Charles Manson yngri. Móðir hans var Rosalie Willis og var hún um tíma gift Manson. Þau skyldu þó árið 1958 og sonur hans breytti nafni sínu í Charles Jay White. Hann framdi sjálfsmorð árið 1993 og skyldi eftir sig Jason Freeman.

Í viðtali við Rolling Stone sagði Freeman að hann hefði ávalt vitað hver afi sinn væri. Þeir hittust aldrei en ræddu reglulega saman í síma á undanförnum árum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×