Lífið

Tók James Blunt tæplega fimm mánuði að skjóta fullkomlega á John Mayer

Stefán Árni Pálsson skrifar
Blunt er gríðarlega vinsællt á Twitter.
Blunt er gríðarlega vinsællt á Twitter.
Söngvarinn John Mayer setti inn tíst í október sem verður að teljast heldur djúpt. Í íslenskri þýðingu myndi það vera svona:

„Ef þú ert sæt, þá ert þú bara sæt. Eina leiðin til að vera talin falleg er að gefa frá sér einhverja ást. Annars myndi fólk bara segja við þig: „til hamingju með þetta fallega andlit.“

Tónlistarmaðurinn James Blunt er gríðarlega orðheppinn á Twitter og er hann talinn einn af þeim allra bestu, þegar fína og fræga fólkið er annars vegar.

Hann tók sinn tíma í að svara Mayer en svarið kom í gær. Tístið frá Blunt var mjög einfalt og hljómaði svona: „Ég er búinn að fjalla um þetta“.

Þar vísar Blunt í hans allra vinsælasta lag. Lagið You're beautiful sem hann gaf út árið 2004 og var á plötunni  Back to Bedlam.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×