Innlent

Hefur gefið blóð 175 sinnum

Birgir Olgeirsson skrifar
Á meðfylgjandi mynd eru mynd af ráðherra og Ólafi Þór ásamt Jóni Svavarssyni formanni Blóðgjafafélagi Íslands.
Á meðfylgjandi mynd eru mynd af ráðherra og Ólafi Þór ásamt Jóni Svavarssyni formanni Blóðgjafafélagi Íslands.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra afhenti í dag Ólafi Þór Hilmarssyni viðurkenningu fyrir að hafa gefið blóð 175 sinnum. Blóðgjafafélag Íslands heiðar ár hvert blóðgjafa sem hvað oftast hafa gefið blóð sem þakklætisvott til þeirra og um leið hvatningu til annarra að gefa blóð ef þeir geta.

Blóðgjafafélagið verður 37 ára innan skamms. Á árlegum aðalfundum félagsins er það eitt aðalverkefnið að heiðra blóðgjafa fyrir merka áfanga í blóðgjöfum. Framan af voru blóðgjafar heiðraðir fyrir 25 og 50 blóðgjafir, en þegar fram liðu stundir hækkuðu viðmiðin eftir því sem aldurinn færðist yfir einarða blóðgjafa. Þeir sem oftast hafa gefi blóð í tíð Blóðgjafafélagsins hafa gert það 200 sinnum.

Svandís þakkaði Ólafi Þór fyrir hans góða framlag til heilbrigðisþjónustunnar þegar hún veitti honum viðurkenninguna í velferðarráðuneytinu í dag




Fleiri fréttir

Sjá meira


×