Enski boltinn

Helena: Allir hungraðir í þennan stóra

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Helena skoraði 16 stig í kvöld
Helena skoraði 16 stig í kvöld Vísir/Andri Marinó
Helena Sverrisdóttir var að vonum glöð í bragði eftir sigur Hauka á Val í Domino’s deild kvenna, en Haukakonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn með sigrinum í Valsheimilinu í kvöld.

„Við vissum að þetta yrði baráttuleikur eins og hann var. Var kannski ekki fallegur körfubolti en það voru allir að leggja allt sitt í þetta og ég er ógeðslega ánægð með stelpurnar og liðið mitt í heildina,“ sagði Helena eftir leikinn.

Það var hægt að taka undir með Helenu að leikurinn var ekki fallegur á að horfa. Það var mikið um baráttu og lítið skorað, lokatölur á Hlíðarenda urðu 67-71.

„Ég er alveg drullu þreytt, þreyttari en vanalega. Það var mikið dæmt og þá varð þetta að ennþá meiri baráttu.“

Sjálfstraustið er hátt í Hafnarfirðinum þar sem liðið hefur unnið síðustu 14 leiki sína í deildinni í röð, sem þýðir að þær hafa unnið öll liðin í deildinni tvisvar í röð, fara með heimavallarrétt í úrslitakeppnina og verða að teljast líklegir Íslandsmeistarar.

„Þetta var fyrsta markmiðið. Við eigum þrjá leiki í deildinni sem við þurfum að klára en við losnum við smá pressu með að vera búnar að tryggja okkur heimaréttinn í úrslitakeppninni. Núna vill maður vera með sjálfstraust og allt það, en það er ótrúlega mikið eftir af vetrinum.“

„Þetta er geggjað en það eru þrír leikir eftir og svo úrslitakeppnin.“

„Þetta lið er að vinna saman í fyrsta skipti, við urðum deildarmeistarar 2016 en þá vorum við með allt öðruvísi lið. Við erum með mjög ungar stelpur og ég fann að þær voru svolítið stressaðar í dag svo ég þurfti aðeins að reyna að stíga upp og taka pressuna af þeim. Við njótum þessa sigurs í nokkura daga og svo fáum við bikarinn afhentan einhvern tíman og það verður veisla.“

„Allir körfuboltamenn vita að úrslitakeppnin er allt önnur keppni og þá eru allir á núlli.“

Haukar eru nú deildarmeistarar í körfubolta bæði hjá körlum og konum, en karlaliðið tryggði sér sinn fyrsta deildarmeistaratitil í síðustu viku, svo lífið er ljúft í herbúðum Hauka.

„Það eru allir mjög hungraðir enn þá. Geggjað að fá bikar, við elskum bikara í Hafnarfirði, en núna er þessi stóri sem bíður okkar og það eru allir hungraðir í hann,“ sagði Helena Sverrisdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×