Lífið

Heimsfrægir plötusnúðar sem söfnuðu fyrir Íslandsdvöl þeyta skífum í kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
The Upbeats spila í miðbæ Reykjavíkur í kvöld.
The Upbeats spila í miðbæ Reykjavíkur í kvöld.
Nýsjálenska plötusnúðatvíeykið The Upbeats, sem er heimsfrægt fyrir verk sín í Drum & Bass-senunni, kemur fram á skemmtistaðnum Paloma í kvöld á stjörnum prýddu fjórtánda klúbbakvöldi íslenska Drum & Bass-hópsins Hausa.

The Upbeats langaði mikið að koma til Íslands og ekki bara til að þeyta skífum eitt kvöld heldur söfnuðu þeir fyrir Íslandsdvöl á Kickstarter undir verkefninu No Sleep 'Til.

Markmið verkefnisins var að safna fyrir ferð til framandi landa þar sem tónlistarmenn hittast, sækja sér innblástur frá hverjum stað, semja tónlist og gera heimildarmynd um allt ferlið.

Hausar halda glæsilegt klúbbakvöld á Paloma í kvöld.

Margverðlaunaðir tónlistarmenn

Þeir félagarnir vonuðust til að safna 7.000 pundum en fóru vel yfir það takmark og fengu frá aðdáendum sínum tæp 9.000 pund til að láta þennan draum sinn rætast.

Þeir hófu ferðina í Japan, en Ísland er seinni áfangastaður verkefnisins. Leitað var til Hausa til að setja saman viðburð þar sem þeir hafa verið leiðandi á sviði drum & bass viðburða í Reykjavík undanfarin ár.

The Upbeats eru margverðlaunaðir tónlistarmenn og áttu meðal annars besta lag ársins 2016 að mati Drum & Bass Arena Awards, sem má heyra hér fyrir neðan. Þeir hafa unnið mikið með Íslandsvinunum í Noisia og spilað á öllum helstu tónlistarhátíðum, allt frá Glastonbury í Bretlandi til EDC í Las Vegas.

Auk The Upbeats spila í kvöld Culture Shock sem er þekktur fyrir kraftmikið drum & bass, og Emperor sem hefur rúllað út hverri neglunni á fætur annarri undanfarin misseri.

Ásamt erlendu gestunum koma fram fastasnúðar Hausa þeir Bjarni Ben, Croax, Nightshock, Untitled og Junglizt. Selt verður á viðburðinn við hurðina og kostar 1000 kr inn, glaðningur fylgir með fyrir fyrstu 100 gestina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×