Handbolti

Auðvelt hjá meisturunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur skoraði þrjú mörk í kvöld.
Ólafur skoraði þrjú mörk í kvöld. vísir/getty
Sænsku meistararnir í IFK Kristianstad lente í lithium vandræðum með Ricoh á heimavelli í kvöld, en lokatölur urðu átta marka sigur Kristianstad, 30-22.

Staðan í hálfleik var 16-12, en Arnar Freyr Arnarsson og Ólafur Guðmundsson skoruðu báðir þrjú mörk fyrir meistarana. Gunnar Steinn Jónsson komst ekki á blað, en þetta var síðasti deildarleikurinn áður en úrslitakeppnin byrjar.

Kristianstad endaði á toppi deildarinnar með 57 stig, 27 sigurleiki, á meðan Ricoh endar í ellefta sætinu. Daníel Freyr Andrésson varði ellefu skot í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×