Innlent

Vill að öflug kona taki við sem forseti ASÍ

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er orðinn efins um úrsögn úr ASÍ eftir
nýlegar breytingar á stjórn Eflingar stéttarfélags.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er orðinn efins um úrsögn úr ASÍ eftir nýlegar breytingar á stjórn Eflingar stéttarfélags. Vísir/Stefán
„Stjórn VR hefur unnið mjög þétt saman frá því ég tók við formennsku og stjórnin samanstendur ekki af minnihluta eða meiri hluta,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, um áhrif stjórnarkjörs á mögulega úrsögn félagsins úr Alþýðusambandi Íslands.

Kosið var um sjö fulltrúa í stjórn VR í vikunni og aðeins tveir nýir fulltrúar komu inn í stjórn, Arnþór Sigurðsson og Friðrik Boði Ólafsson, sem báðir styðja formann félagsins. Ragnar segir úrsagnarferli farið af stað innan VR en ekki er þó ljóst hvort af úrsögn verður, ferlið sjálft muni leiða það í ljós en lögð er áhersla á að hafa það lýðræðislegt með þátttöku félagsmanna. „Við settum þessa endurskoðun á félagsaðild að landssambandinu og ASÍ í ákveðið ferli hjá okkur,“ segir Ragnar en haldnir verða kynningarfundir þar sem farið verður yfir kosti og galla úrsagnar og þar verður fulltrúum bæði landssambandsins og Alþýðusambandsins gefinn kostur á að koma með sín sjónarmið.

„Við ákváðum að farið yrði með ályktun stjórnar um úrsögn yfir í baklandið og svo í allsherjaratkvæðagreiðslu.“ Ragnar er hins vegar tvístígandi eftir þær breytingarnar í Eflingu. „En þessar breytingar sem hafa orðið í Eflingu hafa breytt mínu við- horfi til Alþýðusambandsins,“ segir Ragnar og vísar til hallarbyltingar í stjórn Eflingar og formannskjörs Sólveigar Önnu Jónsdóttur, „Slagkraftur þessarar nýliðunar sem er að verða innan verkalýðshreyfingarinnar og í raun byltingar ákveðins stjórnkerfis og vinnubragða sem verið hafa við lýði, gæti orðið til þess að sameina félögin frekar en að sundra þeim,“ segir Ragnar og bætir við:

„Ef breytingar yrðu í æðstu stjórn Alþýðusambandsins sem leitt geta til þess að það fari að sinna sínu raunverulega hlutverki, þá er ég að sjálfsögðu tilbúinn að endurskoða afstöðu mína til sambandsins enda gæti þetta verið tækifæri til að sameina hreyfinguna í kringum þessar breytingar.“

Aðspurður segir Ragnar alveg liggja fyrir að það verði ekki sátt um Gylfa Arnbjörnsson sem forseta ASÍ en kjósa á forseta í haust. Aðspurður um mögulegan arftaka segir Ragnar: „Ég hef engan sérstakan í huga en ég myndi vilja að það yrði einhver sem getur sameinað hreyfinguna og það væri hreyfingunni til mikilla bóta ef það væri öflug kona.“


Tengdar fréttir

Nýkjörinn formaður boðar breytta tíma

Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn formaður Eflingar, hefur ekki kynnt sér eigin launakjör sem forystumaður í verkalýðshreyfingunni. Hún boðar breytingar í verkalýðsbaráttunni. Segir yfirburði framboðs síns hafa komið á óvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×