Sport

Lamdi kærustuna og missti samninginn í Bandaríkjunum | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hvaða félag vill semja við mann sem hagar sér svona?
Hvaða félag vill semja við mann sem hagar sér svona?
Hafnaboltakappinn Danry Vasquez frá Venesúela mun ekki spila í MLB-deildinni í Bandaríkjunum. Hann sá sjálfur til þess með ótrúlegri hegðun sinni.

Hinn 24 ára gamli Vasquez var á samningi hjá MLB-liðinu Houston Astros og hafði verið að spila með neðrideildarliðum í Bandaríkjunum til þess að sanna að hann væri nógu góður fyrir Astros.

Fyrir tveim árum síðan var hann handtekinn fyrir ofbeldi í garð kærustunnar sinnar. Kærurnar voru felldar niður eftir að hann hafði farið á reiðistjórnunarnámskeið og greitt sekt.

Hann gat því haldið áfram í boltanum en nú hefur myndband af líkamsárásinni lekið á netið og eftir þetta ótrúlega myndband er ekkert MLB-lið að fara að koma nálægt Vasquez. Astros hefur þegar rift samningnum við hann.

Á myndbandinu sést hann slá kærustuna fast og draga hana niður stiga. Lygileg framkoma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×