Glamour

Rauður augnskuggi og neongul hárkolla

Ritstjórn skrifar
Emily Ratajkowski
Emily Ratajkowski Glamour/Getty
Það er svo margt að gerast um helgina, Sónar í Hörpu og svo ýmislegt í boði á Hönnunarmars. Sama hvað þú hefur í hyggju að gera um helgina, þá erum við með förðunina fyrir þig. Hvort sem það er frá Jennifer Lawrence eða frá tískupalli Off-White, þá er hér förðun fyrir hvert tilefni.

Jourdan Dunn hjá Jeremy Scott.
Ertu á leiðinni á Sónar? Þá er þetta útlitið fyrir þig. Neongul hárkolla og bleikur augnskuggi, það passar alveg saman. 

Kaia Gerber á sýningu Off-White
Kaia Gerber var flott máluð á sýningu Off-White, þar sem hennar sterku augabrúnir hennar nutu sín. Einnig er mikill glans á vörum hennar og á húðinni, og er útlit hennar ferskt fyrir vikið. 

Jennifer Lawrence
Jennifer Lawrence var mjög flott máluð á Óskarverðlaunahátíðinni, með gull á augum og brúnrauðum varalit. Fullkomið útlit fyrir þá sem eru að fara út á lífið. 

Margot Robbie
Margot Robbie er yfirleitt glæsilega máluð, og þarna var engin undantekning. Rauður varalitur í aðalhlutverki og augnmálningin látlaus. Þetta útlit hentar fyrir hvaða tilefni sem er. 

Chromat
Litir, litir, litir! Blár litur undir augum og appelsínurauður varalitur. Þetta er sannkallað vor útlit. 

Bella Hadid hjá Alberta Ferretti
Augnblýanturinn fær að njóta sín á Bellu Hadid, og öll önnur förðun er í lágmarki. 

Carolina Herrera
Dökk augu og sterkar augabrúnir voru þemað á sýningu Carolina Herrera, þar sem silfurlitaður var hafður í augnkrókunum og dekkri litur á augnlokinu. 






×