Lífið

Rihanna ætlar ekki að fyrirgefa Snapchat

Birgir Olgeirsson skrifar
Söngkonan Rihanna er ekki ánægð með Snapchat.
Söngkonan Rihanna er ekki ánægð með Snapchat. Vísir/EPA
Söngkonan Rihanna er ekki á þeim buxunum að fyrirgefa fyrirtækinu Snapchat fyrir ósmekklega auglýsingu. Snapchat tók upp á því að spyrja notendur samskiptaforritsins hvort þeir vildu frekar slá Rihönnu eða kýla söngvarann Chris Brown. Var það vísun í þegar Brown beitti Rihönnu ofbeldi árið 2009.

Snapchat fjarlægði auglýsingu eftir mikla gagnrýni og bað Rihönnu afsökunar.

Söngkonan er þó ekki að fara að fyrirgefa Snapchat þessi mistök ef marka má Instagram-reikning hennar.

Þar segist hún vita að Snapchat búi yfir þeirri vitneskju að samskiptaforrtið Snapchat sé ekki í uppáhaldi hjá söngkonunni. Hún segist hins vegar enn vera að reyna að skilja hver hafi verið tilgangurinn með þessu rugli.

Hún segir þetta ekki snúast um sig persónulega heldur að Snapchat hafi með þessu gert grín að öllum fórnarlömbum heimilisofbeldis og valdið þeim miklum vonbrigðum.

„Skammist ykkar og og fleygið þessari app-sökun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×