Lífið

Heltekinn af alpakadýrum: Rauðu kinnarnar höfðu ekki áhrif á Noah sem sló í gegn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Noah Davis er 18 ára en gæti farið langt.
Noah Davis er 18 ára en gæti farið langt.
Noah Davis mætti í áheyrnaprufu í raunveruleikaþættinum American Idol á dögunum og flutti hann lagið Stay með Rihanna.

Dómararnir Katy Perry, Luke Bryan og Lionel Richie voru öll mjög hrifin af söng Davis og virtist hann tengja sérstaklega við Perry.

Katy Perry hefur verið gagnrýnd fyrir að kyssa 19 ára keppanda í þáttunum án samþykkis og greindi Vísir frá því máli í gær.

Noah Davis náði einmitt að tengja vel við Perry og virtust þau ná að spjalla saman á sínu eigin tungumáli.

Noah roðnaði mikið í prufunni og var hann greinilega nokkuð stressaður. Stressið hafði lítið að segja og negldi hann prufuna. Markmiðið hjá þessum 18 ára manni er að vinna keppnina og þá ætlar hann að kaupa sér alpakadýr.

Hér að neðan má sjá þessa frábæru áheyrnaprufu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×