Bíó og sjónvarp

Ný stikla fyrir Infinity War

Samúel Karl Ólason skrifar
StarLord og Iron man að leggja á ráðin.
StarLord og Iron man að leggja á ráðin.
Marvel hefur birt nýja tveggja mínútna stiklu fyrir myndina Avenges: Infinity War sem frumsýnd verður þann 27. apríl. Þar munu hetjur jarðarinnar, og stjörnuþokunnar, koma saman til að stöðva vonda karlinn Thanos. Hann er að safna svokölluðum Infinity Stones og ætlar sér að myrða helming íbúa alheimsins.

Myndin er stjörnum prýdd og í henni verða flestar, ef ekki allar, ofurhetjur kvikmyndaheims Marvel sem litið hafa dagsins ljós hingað til. Hetjur þessar þurfa að vernda jörðina og koma í veg fyrir að Thanos finni alla steinana og nái þannig að framfylgja áætlun sinni.

Sé eitthvað að marka stikluna ætti myndin að verða mikið sjónarspil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×