Innlent

„Hver er næstur?“ Trump grínast með óreiðu innan Hvíta hússins

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vill losna við starfsmenn sem hafa haldið aftur af honum.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vill losna við starfsmenn sem hafa haldið aftur af honum. Vísir/Getty
Síðustu vikur hafa fjölmargir starfsmenn yfirgefið Hvíta húsið og eru starfsmenn sagðir veðja sín á milli um hver verði næstur. Sjálfur forsetinn, Donald Trump, grínast með ástandið en hann er sagður ætla sér að gera umtalsverðar breytingar á ríkisstjórn sinni.

Ríkisstjórn Trump hefur í raun sett met í starfsmannaveltu meðal háttsettra starfsmanna Hvíta hússins.

Samkvæmt heimildum AP fréttaveitunnar fundaði forsetinn í gærmorgun með Mike Pence, varaforseta, og John Kelly, starfsmannastjóra, og ræddu þeir stöðuna í Hvíta húsinu.



„Hver er næstur?“ sagði Trump í gríni. Þó nokkrir koma til greina.

Fjölmiðlar ytra segja Trump hafa ákveðið að segja upp þjóðaröryggisráðgjafa sínum, H.R. McMaster. Hann hafi hins vegar ekki ákveðið tímasetningu né hver eigi að taka við honum. Trump hefur sömuleiðis hug á að segja Kelly upp og ráðherra málefna uppgjafahermanna, David Shulkin, stendur höllum fæti eftir að hafa brotið gegn siðareglum.

AP ræddi við tíu embættismenn úr Hvíta húsinu sem vildu ekki koma fram undir nafni. Samkvæmt þeim ætlar Trump sér að gera umtalsverðar breytingar á ríkisstjórn sinni og ráða fólk sem mun fylgja stefnumálum hans og hann getur átt í betri samskiptum við.

Starfsmenn segja sumir að Hvíta húsið sé að breytast í hóp af klappstýrum.

Í umfjöllun AP segir enn fremur að Trump hafi velt upp hugmyndum um breytingar við vini sína og hann telji stál og ál tolla auk ákvörðunar sinnar að hitta Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa blásið nýju lífi í ríkisstjórn sína. Forsetinn vilji grípa til fleiri umfangsmikilla aðgerða og til þess þurfi hann að losa sig við starfsmenn sem haldi aftur af honum.

Vopn í höndum Demókrata

Blaðamenn Politico benda á að breytingar Trump munra Demókrötum á öldungadeild þingsins mögulegt að koma í veg fyrir að aðilar sem hann ráði komist í stöður sínar í ríkisstjórninni. Þar eru Repúblikanar einungis með eins manns meirihluta. Þar að auki hefur þingmaðurinn Rand Paul ekki reynst fylgja stefnumálum Trump og John McCain er fjarverandi vegna veikinda.



Hins vegar eru tíu þingmenn Demókrataflokksins frá ríkjum sem Trump vann í forsetakosningunum og þeir eiga erfiðar kosningar í vændum í nóvember. Þeir gætu verið undir pressu til að styðja aðgerðir forsetans.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×