Lífið

Lóa Pind og Sigurður fengu næstbestu einkunnina fyrir þennan vals

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lóa Pind ætlar sér stóra hluti í Allir geta dansað.
Lóa Pind ætlar sér stóra hluti í Allir geta dansað.
Lóa Pind Aldísardóttir og Sigurður Már Atlason mynda danspar í glænýjum raunveruleikaþætti á Stöð 2 sem ber nafnið Allir geta dansað. Parið dansaði Vals í fyrsta þættinum og fóru hreinlega á kostum. Dómnefndin gaf þeim tuttugu stig og var það næstbesta einkunn kvöldins.

Um er að ræða nýjan íslenskan skemmtiþátt í beinni útsendingu byggður á hinum geysivinsælu þáttum Dancing with the Stars.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.

Kynnar í þáttunum eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Dómarar eru Selma Björnsdóttir, Karen Reeve og Jóhann Gunnar Arnarsson. Hér að neðan má sjá dansinn frá Lóu og Sigurði frá því á sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×