Sport

Sjáið einstaka sýningu Julio Borba

Telma Tómasson skrifar
Portúgalski reiðlistamaðurinn Julio Borba.
Portúgalski reiðlistamaðurinn Julio Borba. Stöð 2 Sport
Portúgalski reiðlistamaðurinn Julio Borba tók þátt í keppni í gæðingafimi í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum og átti einstaka sýningu á gæðingnum Glampa frá Ketilsstöðum, en hann kom fram sem leynivopn liðs Gangmyllunnar.

Leynikeppendur eru nýlunda hjá Meistaradeildinni, en liðin sem samkvæmt reglum eru skipuð fimm knöpum geta keypt inn og teflt fram utanaðkomandi knapa í einstökum greinum sýnist þeim svo.

Fjórir nýir knapar tóku þátt í keppni í gæðingafimi í TM reiðhöllinni í Víðidal í gærkvöldi og var Julio Borba einn af þeim. Mikil leynd hvíldi yfir komu hans í braut og var ekki ljóst hvert væri leynivopn Gangmyllunnar fyrr en meistarinn sjálfur mætti.

Rætur Julio Borba liggja í klassískri reiðmennsku sem endurspeglaðist í einstakri sýningu hans á Glampa og uppskar hann efsta sætið eftir forkeppni og einkunnina, 7,90. Þetta er í fyrsta sem hann keppir á Íslandi og hvernig var tilfinningin?

„Ég var hvílíkt stressaður og það var frábært að klára sýninguna,“ sagði Borba brosandi og ögn andstuttur eftir forkeppnina. „Ég var með frábæran hest, ungan, en með mikla getu og ótrúlegt geðslag.“

Glampi frá Ketilsstöðum er ungur stóðhestur, aðeins sjö vetra gamall, og var ekki jafn ferskur í A-úrslitum og hann hafði verið í forkeppninni, enda álag mikið á hesti í sýningu í gæðingafimi. J. Borba endaði í öðru sæti eftir úrslitasýningu sína með einkunnina 7,91.

Sýninguna í forkeppninni má sjá í meðfylgjandi myndskeiði, en sýnt var beint frá keppninni á Stöð 2 sport.



J. Borba er þekktur og eftirsóttur reiðkennari um allan heim, en hann hefur í meira en áratug komið til Íslands og kennt íslenskum knöpum reiðlist.

Hann hefur með starfi sínu haft mikil áhrif á reiðmennsku hérlendis og margir af helstu afreksknöpum landsins sækja reglulega reiðtíma hjá Borba. Hann segist mjög hændur að landinu og hér sé nánast hans annað heimili.



Niðurstöður A-úrslita í gæðingafimi í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum voru eftirirfarandi:


1. Árni Björn Pálsson    Flaumur frá Sólvangi        8.23    

2. Julio Borba    Glampi frá Ketilsstöðum        7.91    

3. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir    Óskar frá Breiðstöðum        7.59    

4. Viðar Ingólfsson    Pixi frá Mið-Fossum        7.49    

5. Mette Mannseth    Karl frá Torfunesi    7.48    

6. Sylvía Sigurbjörnsdóttir    Héðinn Skúli frá Oddhóli    7.31



Gangmyllan leiðir

Liðsplattinn fyrir gæðingafimi fór til Gangmyllunnar sem J. Borba keppti fyrir, en Elin Holst á Frama frá Ketilsstöðum, sem er í sama liði, stóð rétt fyrir utan úrslit. Söfnuðu þau sameiginlega flestum stigum í þessari keppnisgrein.

Þrjú stigahæstu liðin í Meistaradeildinni eru sem stendur: Gangmyllan með 180 stig, Top Reiter með 176,5 stig og Auðsholtshjáleiga með 162,5 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×