Íslenski boltinn

Annar sigur Fram í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hipólito og félagar eru að komast á skrið.
Hipólito og félagar eru að komast á skrið. vísir/andri marinó
Fram kláraði Njarðvík í 5. umferð A-deild Lengjubikarsins, en sigurmarkið kom tíu mínútum fyrir leikslok.

Theodór Guðni Halldórsson kom Njarðvík yfir eftir rúma mínútu, en á 24. mínútu jafnaði Hlynur Atli Magnússon metin og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Varamaðurinn Orri Gunnarsson skoraði svo sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok, en Fram endar riðilinn með tvo sigra og eru nú í þriðja sætinu. Þeir unnu tvo síðustu leikina, gegn Njarðvík og Víkingi Reykjavík.

Njarðvík er sæti neðar og enda með fjögur stig, en ÍBV og Víkingur Reykjavík eiga eftir að spila innbyrðis og verma þau botninn með fjögur og þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×