Golf

Ólafía úr leik í Phoenix

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Bank of Hope Founders Cup-mótinu sem er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi.

Ólafía náði sér ekki á strik á öðrum keppnisdegi í nótt og spilaði á fjórum höggum yfir pari. Hún hafnaði meðal neðstu keppenda mótsins á sex höggum yfir pari samtals.

Ólafía fékk tvo fugla og tvo skolla en það voru 17. og 18. holan sem gerðu henni mikinn grikk. Ólafía fékk skramba á báðum sem gerðu endanlega út um vonir hennar um að komast áfram á mótinu.

Ólafíu gekk þó betur að slá af teig á öðrum keppnisdegi en þeim fyrsta. Hún hitti braut í tíu af fjórtán skiptum og kom sér á flöt í réttum höggfjölda í fjórtán skiptum af átján. Pútterinn virðist hins vegar hafa svikið hana í þetta skiptið þar sem hún púttaði alls 35 sinnum á öðrum keppnishring.

Næsta mót hennar verður Kia Classic-mótið sem fer fram í Carlsbad í Kaliforníu í næstu viku.


Tengdar fréttir

Ólafía gerði sér erfitt fyrir á síðustu holunni

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, kastaði frá sér góðri stöðu á lokaholunni á Bank of Hope Founders Cup í Phoenix, en þetta er þriðja LPGA-mót Ólafíu þetta tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×