Erlent

Pissaði í blómapott og kom upp um sig eftir 30 ár á flótta

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Eric McKenna nauðgaði tveimur konum á níunda áratug síðustu aldar.
Eric McKenna nauðgaði tveimur konum á níunda áratug síðustu aldar. Lögreglan í Northumbria
Eric McKenna, sem dæmdur var fyrir að nauðga tveimur konum í norðausturhluta Englands árin 1983 og 1988, hefur verið hnepptur í varðhald. Hann hafði verið á flótta undan lögreglu í 30 ár þangað til að lífsýni kom yfirvöldum á sporið.

McKenna var gripinn við að pissa í blómapott nágranna síns árið 2016 og var lögregla kölluð til vegna málsins. Þar var tekið lífsýni úr blómapottinum sem að endingu reyndist úr sama manni og var grunaður um aðild að áðurnefndum voðaverkum, þ.e. McKenna sjálfum.

Talsmaður lögreglu á svæðinu lýsti málinu sem „óvenjulegu“ og að McKenna virtist ekki iðrast gjörða sinna. Þá sagði talsmaðurinn glæpina hryllilega og gagnrýndi auk þess vinnubrögð lögreglu á níunda áratugnum. Þolendur hafi ekki hlotið tilhlýðilega þjónustu og ummönnun en báðar konurnar hafa verið beðnar afsökunar vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×