Innlent

Segjast olnbogabarn í kerfinu og vilja ríkisrekstur

Elín Margrét Böðvarsdóttir og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Formaður Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir að einfalda þurfi rekstrarmódel sjúkrabíla á Íslandi og vill að þjónustan verði ríkisrekin. Sjúkraflutningamenn hafi upplifað sig sem olnbogabarn í kerfinu en nú sé lag að gera bragarbót á.

Rauði kross íslands hefur sinnt rekstri sjúkrabíla hér á landi í 90 ár en stjórnvöld hafa ákveðið að taka reksturinn yfir. Var það vilji velferðarráðuneytisins að reksturinn yrði tekinn yfir í þrepum á þremur árum en því hafnar Rauði krossinn sem vill hætta strax.

Sjá einnig: Rekstur sjúkrabíla á Íslandi í uppnámi

Ekki liggur fyrir hvort Velferðarráðuneytið ætli að sjá um áframhaldandi rekstur eða hvort hann verði boðinn út. Stefán Pétursson, formaður landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, sér þó tækifæri í breytingunum.

„Við höfum svolítið upplifað okkur sem týnda starfsstétt og olnbogabarn í kerfinu þannig að nú sjáum við sóknarfæri í að efla og skilgreina þjónustuna. Við fögnum framtaki ráðherra að taka þjónustuna til gagngerrar endurskoðunar og treystum ráðherra til faglegra vinnubragða.“

Hann telur brýnt að einfalda rekstrarmódel sjúkrabíla á Íslandi og vill að reksturinn verði færður til fagaðilanna sjálfra. Hann þakkar Rauða krossinum fyrir gott samstarf í gegnum árin og ítrekar mikilvægi endurnýjunar í tækjabúnaði.

„Við viljum sjá þetta ríkisrekið, bara líkt og lögregluna, og við styðjum flutning verkefnisins til sveitarfélaga. En þá verður að tryggja rekstrarfé og það þarf að styrkja embætti utanssjúrahússlæknis á Íslandi,“ segir Stefán.

Þótt óvissa ríki nú um framtíð sjúkrabílaþjónustu segir Stefán að ekki þurfi að óttast óvissan komi niður á þjónustunni. „Ég hef fulla trú á að ráðherra og fólk í utanspítalaþjónustu vinni þetta mál hratt, faglega og örugglega. Það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því.“

Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að rekstur sjúkrabílaflotans á Íslandi væri í uppnámi eftir að ríkið tók ákvörðun um að Rauði krossinn hætti rekstri þeirra. Kostnaður ríkisins við yfirtökuna gæti hlaupið á hundruðum milljóna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×