Lífið

Góði úlfurinn tróð upp á Njálsgöturóló: „Hef komið oft hingað með vinum mínum til þess að leika mér í eltingarleik“

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Gleðin var við völd á Njálsgöturóló í dag þegar þar fór fram svokallað krakkareif. Vinafélag leikvallarnis hefur síðasta árið unnið að uppbyggingu leikvallarins en hollvinir hafa farið þess á leit við borgaryfirvöld að veita fjármagni til frekari endurbóta á leikvellinum.

Njálsgöturóló er um 80 ára gamall og elsti leikvöllur borgarinnar en í dag vildi vinafélagið meðal annars vekja athygli á því hvernig hægt sé að nýta völlinn undir skemmtilega viðburði.

„Þessi samkoma er til þess að virkja fólkið hérna í kring, sem býr hérna og krakkana, og við erum að reyna að fá Reykjavíkurborg til þess að setja sirka 20 milljónir til þess að gera hann meira næs, öll leiktæki eru orðin lúin,“ segir Jóna Hlíf Halldórsdóttir, hjá Vinafélagi Njálsgöturóló.

Meðal þeirra sem skemmtu gestum og gangandi í dag voru ungir dansarar frá Dansi Brynju Péturs ásamt DJ Sigrúnu Skafta sem þeytti skífunum. Þá höfðu nokkrir krakkanna á róluvellinum heyrt af óvæntum gesti. Rapparinn ungi sem gegnur undir listamannsnafninu Góði úlfurinn steig á stokk og tók tvö lög sem vöktu mikla lukku. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem Úlfur kíkir á leikvöllinn. „Ég hef komið oft hingað með vinum mínum til þess að leika mér í eltingarleik,“ segir Úlfur Emilio, betur þekktur sem Góði úlfurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×