Fótbolti

Arnór Ingvi skaut Malmö í úrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór Ingvi þegar hann handsalaði samninignn.
Arnór Ingvi þegar hann handsalaði samninignn. vísir/heimasíða MFF
Arnór Ingvi Traustason reyndist hetja Malmö gegn Östersunds FK í undanúrslitum sænska bikarsins en Malmö vann 1-0 sigur er liðin mættust í kuldanum í Östersund í kvöld.

Markalaust var allt þangað til á 80. mínútu er Arnór Ingvi skoraði markið sem skildi liðin að. Keflvíkingnum var svo skipt af velli á 89. mínútu en Malmö er með sigrinum komið í úrslitaleikinn.

Malmö mætir annað hvort AIK eða Djurgarden í úrslitaleiknum en liðin mætast annað kvöld. Úrslitaleikurinn fer fram 10. maí en deildin í Svíþjóð hefst í byrjun apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×