Enski boltinn

Græddi eina milljón punda þökk sé sigurmarki í uppbótartíma

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atdhe Nuhiu er væntanlega orðinn uppáhaldsleikmaður Packham.
Atdhe Nuhiu er væntanlega orðinn uppáhaldsleikmaður Packham. vísir/getty
Hinn 59 ára gamla Jacqueline Packham fór væntanlega nokkuð ánægð á koddann í gærkvöldi en Packham gerði sér lítið fyrir vann sér inn risastóran lottóvinning í gær.

Packham giskaði á úrslit gærdagsins í risapotti í Bretlandi og varð einni milljón punda ríkari eftir úrslit dagsins.

Hún þurfti þó að bíða í óvissu lengi vel því Atdhe Nuhiu tryggði henni risapottinn í uppbótartíma er hann skoraði sigurmark Sheffield Wednesday gegn Leeds.

Leikirnir sem Jacqueline giskaði rétt á:

Bournemouth 2-1 West Brom

Huddersfield 0-2 Crystal Palace

Stoke 1-2 Everton

Brentford 1-1 Middlesbrough

Leeds 1-2 Sheffield Wednesday

Sheffield United 0-0 Nottingham Forest




Fleiri fréttir

Sjá meira


×