Lífið

Keilukúlu kastað á trampólín úr 45 metra hæð

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir hafa vakið mikla athygli fyrir nákvæmi með pílur og fleiri hluti. Að þessu sinni léku þeir sér með keilu.
Þeir hafa vakið mikla athygli fyrir nákvæmi með pílur og fleiri hluti. Að þessu sinni léku þeir sér með keilu.
Áströlsku strákarnir í How Ridiculous á Youtube eru sífellt að kasta hlutum úr mikilli hæð. Þeir hafa vakið mikla athygli fyrir nákvæmi með pílur og fleiri hluti. Að þessu sinni léku þeir sér með keilukúlu.

Sjá einnig: Pílukast fært í nýjar hæðir



Strákarnir giskuðu sín á milli um hvort að trampólínið sem þeir keyptu, ódýrt, myndi þola að fá keilukúlu á sig úr svo mikilli hæð án þess að rifna og voru skiptar skoðanir um það.

Hér að neðan má sjá „tilraunina“ og sömuleiðis nokkur af vinsælum myndböndum strákanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×