Innlent

„Óþolandi“ að fyrirtæki skilyrði gildistíma gjafabréfa

Erla Björg Gunnarsdóttir og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Gjafabréf Wow air hafa aðeins árs gildistíma. Leiðbeinandi reglur gera ráð fyrir fjórum árum.
Gjafabréf Wow air hafa aðeins árs gildistíma. Leiðbeinandi reglur gera ráð fyrir fjórum árum. vísir/vilhelm
Í leiðbeinandi reglum um skilarétt er talað um fjögurra ára gildistíma á gjafabréfum en fjölmörg fyrirtæki hafa gildistíma mun styttri. Kvartanir vegna gildistíma gjafabréfa koma reglulega á borð Neytendasamtakanna, til að mynda vegna gjafabréfa Wow air sem hafa aðeins árs gildistíma.

Margar kvartanir sem Neytendasamtökin fá vegna gjafabréfa eru vegna gjafabréfa flugfélaga, sérstaklega Wow air, en samkvæmt skilmálum þeirra er gildistíminn aðeins eitt ár og ferðin þarf að hafa verið farin innan þess árs. 

Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakann segir engin lög gilda um gildistíma en ákveðin viðmið séu til. 

Það er almennur fyrningarfrestur á kröfum og leiðbeinandi reglur um skilarétt, þá er talað um fjögur ár. En þetta eru leiðbeinandi reglur.“  



Of stuttur gildistími

Neytendasamtökin sendu erindi á Wow air í janúar og fóru þess á leit að fyrirtækið breytti skilmálum sínum og lengdi gildistíma gjafabréfa úr einu ári í fjögur ár. Wow air þakkaði erindið en tjáði að það hefði ekki í hyggju að breyta fyrirkomulaginu. Nú hefur Wow air hins vegar hætt sölu gjafabréfa og segir Brynhildur það skref í rétta átt enda eigi neytendur ekki að tapa fjármunum vegna ósanngjarnra skilmála.

Icelandair er með tveggja ára gildistíma sem Brynhildi finnst einnig of stuttur og segir hún Neytendasamtökin ekki geta ráðlagt kaup á gjafabréfum með svo stuttum gildistíma. 

„Gjafabréf eru sniðug gjöf. Það er óþolandi að það sé verið skilyrða gildistímann. Seljandinn er búinn að fá peninginn í sinn rekstur og ekkert búinn að gera á móti. Ég skil ekki alveg af hverju seljendur koma ekki betur til móts við kaupendur og það væri fróðlegt að vita hve mikið fjármagn liggur að baki útrunnum gjafabréfum og þeim peningum væri betur varið í eitthvað annað,“ segir  Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×