Enski boltinn

United og Tottenham mætast í undanúrslitum bikarsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tottenham og United mætast í lok apríl.
Tottenham og United mætast í lok apríl. vísir/getty
Manchester United og Tottenham mætast í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar en dregið var í undanúrslitin strax eftir leik Chelsea og Leicester sem þurfti að framlengja.

Chelsea, sem tryggði sig inn í undanúrslitin fyrr í kvöld, mætir liði Southampton. Ekkert hefur gengið hjá Southampton í deildinni og nýr stjóri, Mark Hughes, er tekinn við þeim. Þeir vonast eftir bikarævintýri.

Þetta er eini möguleiki Chelsea á titli þetta tímabilið, en í hinum leiknum mætast Manchester United og Tottenham. Þetta eru einnig einu möguleikar þessara lið á að vinna eitthvað þetta tímabilið.

Leikirnir fara fram á Wembley en leikirnir fara fram 21. og 22. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×