Fótbolti

Ter Stegen grátbiður Iniesta um að vera áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ter Stegen og Iniesta ásamt Pique.
Ter Stegen og Iniesta ásamt Pique. vísir/getty
Marc-Andre ter Stegen, markvörður Barcelona, nánast grátbiður Andres Iniesta, fyrirliða sinn, um að vera áfram hjá félaginu eftir yfirstandandi tímabil. Lið frá Kína vill klófesta þann spænska og hann verður að ákveða sig á næstu vikum.

„Þetta er hans persónulega ákvörðun og allir vona að hann verði áfram hjá Barca því hann er frábær persóna. Við vitum að við þurfum að halda áfram sem lið út þetta tímabil og við þurfum hann núna og á næstu árum,” sagði Ter Stegen.

„Við erum að hugsa um núið og hann mun svo taka ákvörðun. Ég vona að hann verði áfram en sá eini sem veit hvað hann á að gera er hann sjálfur. Við vitum að hann er frábær persóna sem er mikilvæg fyrir klúbbinn.”

„Við munum gera allt til þess að sannfæra hann um að vera áfram. Þetta er hans ákvörðun og við styðjum hann hvað sem hann gerir. Við elskum hann sem fyrirliða,” sagði markvörðurinn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×