Viðskipti innlent

Aukinn hagnaður hjá Fjarskiptum

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Stefán Sigurðsson, forstjóri Fjarskipta
Stefán Sigurðsson, forstjóri Fjarskipta
Hagnaður Fjarskipta, móðurfélags Vodafone, nam 356 milljónum króna á fjórða fjórðungi síðasta árs og jókst um 110 prósent á milli ára, samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í gær. Sé leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði sem féll til vegna kaupa félagsins á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla nam hagnaður Fjarskipta 482 milljónum króna á fjórðungnum.

Tekjur voru 4.304 milljónir króna á tímabilinu og jukust um 25 prósent á milli ára en rekstrarkostnaður var 1.560 milljónir króna og hækkaði um 31 prósent frá fyrra ári.

EBITDA Fjarskipta – hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta – nam 803 milljónum á fjórða ársfjórðungi og jókst um 16 prósent á milli ára. EBITDA var 3.137 milljónir króna á árinu í heild og jókst um 3 prósent frá 2016.

Stefán Sigurðsson, forstjóri Fjarskipta, segir að þó stutt sé liðið frá kaupum félagsins á flestum eignum og rekstri 365 megi glöggt sjá „sterk jákvæð áhrif sem munu halda áfram að skila sér af meiri krafti næstu fjórðunga og ár“. Þrátt fyrir mikið álag og vinnu innan fyrirtækisins hafi allt gengið að óskum og eftir þeim áætlunum sem lagðar voru til grundvallar kaupunum.

Vísir er í eigu Fjarskipta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×