Körfubolti

NBA: Pelíkanarnir fljúga hátt í NBA þessa dagana og Eldflaugarnar líka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
James Harden í leiknum í nótt.
James Harden í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Houston Rockets hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann þá sinn fjórtánda leik í röð. Það er líka gaman að fylgjast með uppgangi New Orleans Pelicans sem er komið með sjö sigra í röð.

Tvö efstu lið Austurdeildarinnar, Toronto Raptors og Boston Celtics, unnu bæði leiki sína í nótt alveg eins og tvö efstu í vestrinu, Houston og Golden State Warriors. Safnaferð Golden State liðsins í Washington borg hafði góð áhrif á meistaranna því þeir unnu góðan sigur nokkrum klukkutímum síðar.



 

James Harden var með 25 stig og 7 stoðsendingar og Chris Capela bætti við 22 stigum og 14 fráköstum í 105-92 sigri Houston Rockets á Los Angeles Lakers.  

Eric Gordon kom með 22 stig inn af bekknum en Houston vann fyrsta leikhlutann 34-12 og leit ekki til baka eftir það. Harden skoraði 17 af 25 stigum sínum strax í fyrsta leikhlutanum og var þá kominn með fimm stigum meira en allt Clippers liðið.

Houston Rockets liðið hefur nú unnið 14 leiki í röð og 20 af síðustu 22 leikjum. Liðið ætlar ekki að gefa neitt eftir í baráttunni við Golden State um efsta sætið í Vesturdeildinni.

Kevin Durant skoraði 32 stig fyrir Golden State Warriors í 109-101 útisigri á Washington Wizards en þetta var fjórði sigur liðsins í röð og sá sjöundi í síðustu átta leikjum. Fyrr um daginn fóru leikmenn liðsins í skoðunarferð með börnum í safn í stað þess að hitta Donald Trump forseta.

Stephen Curry var með 25 stig í leiknum, Klay Thompson skoraði 13 stig og spilaði frábæra vörn á Bradley Beal (8 stig) og Draymond Green bætti við 11 stigum og 11 stoðsendingum.

Enn á ný var það flottur þriðji leikhluti sem lagði grunninn að sigri Golden State. Liðið var bara 58-56 yfir í hálfleik en byrjaði seinni hálfleikinn á 16-4 spretti. Liðið var síðan með stjórnina eftir það.





Anthony Davis var með 26 stig og 15 fráköst þegar New Orleans Pelicans vann 121-116 útisigur á San Antonio Spurs. Þetta var sjöundi sigur Pelíkananna í röð og það þrátt fyrir að liðið lenti mest fimmtán stigum undir.

Óheppni San Antonio Spurs hélt áfram. Liðið hefur leikið án  Kawhi Leonard næstum allt tímabilið og í nótt meiddist síðan LaMarcus Aldridge. Þetta var fimmta tap Spurs-liðsins í síðustu sex leikjum.

DeMar DeRozan skoraði 21 stig og Kyle Lowry  bætti við 17 stigum, 11 stoðsendingum og 7 fráköstum þegar Toronto Raptors vann 117-104 sigur á Orlando Magic. Þetta var ellefti sigur Toronto liðsins í síðustu þrettán leikjum og liðið er með besta sigurhlutfallið í Austurdeildinni. Boston er samt ekki lang á eftir.





Kyrie Irving skoraði 34 stig í fyrstu þremur leikhlutanum og hvíldi sig síðan á bekknum í þeim fjórða þegar Boston Celtics vann sannfærandi 134-106 sigur á Charlotte Hornets. Jaylen Brown var með 15 stig fyrir Boston liðið og þeir Terry Rozier og Greg Monroe skoruðu 14 stig hvor.

Boston vann sinn fjórða leik í röð og endaði fimm leikja sigurgöngu Charlotte. Kemba Walker hitti úr fyrstu átta skotum sínum og endaði með 23 stig fyrir Charlotte.

Russell Westbrook skoraði 30 stig og lagði grunninn að 111-110 sigri Oklahoma City Thunder á Dallas Mavericks með því að skora risakörfu og fá víti að auki á lokamínútu framlengingarinnar. Westbrook var einnig með 11 fráköst og 7 stoðsendingar í leiknum.

Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Los Angeles Clippers - Houston Rockets    92-105

Dallas Mavericks - Oklahoma City Thunder    110-111 (100-100)    

San Antonio Spurs - New Orleans Pelicans    116-121    

Memphis Grizzlies - Phoenix Suns    102-110    

Washington Wizards - Golden State Warriors    101-109    

Atlanta Hawks - Indiana Pacers    107-102    

Boston Celtics - Charlotte Hornets    134-106    

Detroit Pistons - Milwaukee Bucks    110-87    

Orlando Magic - Toronto Raptors    104-117

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×