Fótbolti

Stjörnuleikmenn PSG hrynja niður í aðdraganda Real Madrid leiksins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylian Mbappe.
Kylian Mbappe. Vísir/Getty
Það hefur kostað sitt fyrir franska stórliðið Paris Saint Germain að vinna Marseille tvisvar sinnum á síðustu fjórum dögum. Tvær stórstjörnur liðsins hafa meiðst í leikjunum og framundan er seinni leikurinn við Real Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Paris Saint-Germain vann 3-0 sigur í báðum leikjunum á móti Marseille á síðustu fjórum dögum, sá fyrri var í deildinni en leikurinn í gærkvöldi var bikarleikur.

Fyrir leikinn kom í ljós að Brasilíumaðurinn Neymar þarf að gangast undir aðgerð á fæti vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í deildarleiknum á sunnudagskvöldið. Neymar verður frá í margar vikur og missir örugglega af Real Madrid leiknum.





Neymar fer í aðgerðina í Brasilíu en Brasilíumenn hafa einnig áhyggjur af sínum manni enda rétt rúmir hundrað dagar í heimsmeistarakeppnina í Rússlandi þar sem hann mun leið landslið þjóðarinnar.

Í gærkvöldi meiddist síðan franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe og fór hann af velli í hálfleik eftir að hafa fengið högg. Það er ekki ljóst hversu alvarleg þessi meiðsli eru.





Hinn 19 ára gamli Kylian Mbappe er á eins árs láni frá Mónakó en PSG hefur forkaupsrétt á honum í sumar ef félagið er tilbúið að borga 165,7 milljónir punda fyrir hann.

Parísarliðið þarf á einhverjum göldrum að halda í seinni leiknum á móti Real Madrid eftir að spænska liðið vann 3-1 sigur í fyrri leiknum á Santiago Bernabéu. Það að tveir „galdramenn“ séu dottnir út eða tæpir er mikið áfall fyrir liðið.

Neymar og Kylian Mbappe eru einmitt hjá félaginu til að hjálpa liðinu að komast loksins alla leið í Meistaradeildinni og engin óskastaða að missa þá báða út fyrir þennan mikilvæga leik. Það er þó ekki víst að Kylian Mbappe geti ekki spilað í leiknum sem fer fram í næstu viku.  

Angel Di Maria skoraði tvívegis í gær og þriðja markið skoraði Edinson Cavani níu mínútum fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×