Viðskipti erlent

Bandaríkjastjórn gæti tilkynnt um verndartolla á stál og ál

Kjartan Kjartansson skrifar
Trump hikaði ekki við að leggja á tuga prósenta verndartolla á innfluttar sólarsellur og þvottavélar í janúar.
Trump hikaði ekki við að leggja á tuga prósenta verndartolla á innfluttar sólarsellur og þvottavélar í janúar. Vísir/AFP
Hvíta húsið er sagt undirbúa meiriháttar tilkynningu um verndartolla á innflutt stál og ál í dag. Leynd ríkir yfir efni tilkynningarinnar en sumir repúblikanar hafa varað við því að verndartollarnir gætu hrundið af stað viðskiptastríði.

Ákvörðun um að leggja tolla á innflutta málma yrði tekin á grundvelli niðurstöðu Wilburs Ross, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, um að stórfelldur innflutningur á stáli og áli ógni þjóðaröryggi landsins.

Enn liggur margt á huldu um tilkynninguna og Washington Post segir að mögulega verði henni frestað. Forstjórum stál- og álfyrirtækja hefur verið boðið á viðburð í Hvíta húsinu.

Vara við áhrifunum á samskipti við bandalagsríki

Sumir repúblikanar hafa reynt að koma í veg fyrir að Donald Trump forseti leggi verndartollana á. Politico segir að heitar rökræður hafi farið fram í Hvíta húsinu í gær um hvort rétt væri að tilkynna um tollana strax. Enn væri ekki búið að binda alla lausa enda hvað lagalegu hlið tollanna varðaði.

Trump vilji leggja 25% toll á stálinnflutning og 10% á ál. Gary Cohn, efnahagsráðgjafi Trump, er hins vegar sagður hafa barist hatrammlega gegn tollunum á bak við tjöldin. Rex Tillerson, utanríkisráðherra, James Mattis, varnarmálaráðherra og H.R. McMaster, þjóðaröryggisráðgjafi Trump, eru einnig allir sagðir hafa varað við tollunum. Þeir geti skaðað samskipti Bandaríkjanna við mikilvæg bandalagsríki.

Háir verndartollar voru lagðir á sólarsellur og þvottavélar í janúar samkvæmt ákvörðun Trump forseta. Ódýrar innfluttar vörur voru sagðar skaða bandaríska framleiðendur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×