Innlent

Unir dómi Mannréttindadómstólsins í máli Egils

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Egill Einarsson.
Egill Einarsson. Vísir/Vilhelm
Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Egils Einarssonar verði ekki skotið til yfirdeildar dómstólsins. Ríkið hefur þegar greitt Agli rúmlega tvær milljónir króna í málskostnað sem það var dæmt til að greiða.

RÚV greindi fyrstfrá en Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, staðfestir þetta í samtali við Vísi.

Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirriniðurstöðu að dómur Hæstaréttarí máli Egils Einarssonar, betur þekktur sem Gillzenegger, gegn Inga Kristjáni Sigurmarssyni hafi verið brot á áttundu grein mannréttindasáttmálans sem segir að sérhver maður eigi rétt á friðhelgi til einkalífs.

Egill fór fram á að ummælin „Fuck you rapist bastard“ eða „„Farðu til fjandans nauðgaraskepna“sem Ingi Kristján skrifaði við mynd sem hann birti á Instagram yrðu dæmd dauð og ómerk.

Hæstiréttur klofnaði í dómi sínum í lok árs 2014 en tveir dómarar töldu ummælin varin af 73. grein stjórnarskárinnar er snýr að tjáninga frelsi. Einn dómari skilaði sératkvæði.

Í dómi Mannréttindadómstólsins, sem fimm dómarar voru sammála um en tveir skiluðu sératkvæði, segir meðal annars að ummælin hafi verið alvarleg og skaðleg fyrir orðspor Egils. Þau hafi leitt til brots á friðhelgi einkalífs Egils og er vísað til 8. greinar mannréttindasáttmálans. Jafnvel umdeildar opinberar persónur, sem hafa tekið þátt í grófri umræðu eða orðið fyrir henni vegna hegðunar sinnar, eigi ekki að þurfa að sæta því að vera opinberlega ásakaðar um alvarleg hegningarlagabrot án þess að ásökunin eigi sér stað í raunveruleikanum.

Var það niðurstaða dómstólsins að Hæstiréttur hefði ekki gætt rétt jafnvægis á milli friðhelgi Egils til einkalífs og tjáningarfrelsis Inga Kristjáns. Egill fór fram á 10 þúsund evrur í miskabætur vegna málsins en dómstóllinn hafnaði þeirri beiðni.

Tveir dómarar skiluðu sératkvæði og töldu dóm Hæstaréttar réttan.

Íslenska ríkið er dæmt til þess að greiða Agli 17.500 evrur vegna dómsins eða rúmlega 2,1 milljón íslenskra króna í málskostnað, annars vegar fyrir dómstólum á Íslandi og hins vegar fyrir Mannréttindadómstólnum, sem ríkið hefur þegar greitt Agli, eins og fyrr segir.


Tengdar fréttir

Íslenska ríkið braut á mannréttindum Egils

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur komist að þeirri niðurstöðu að dómur Hæstaréttar í máli Egils Einarssonar, betur þekktur sem Gillzenegger, gegn Inga Kristjáni Sigurmarssyni hafi verið brot á áttundu grein mannréttindasáttmálans.

Nauðgaraummælin standa

Egill Einarsson tapaði meiðyrðamáli gegn Inga Kristjáni Sigurmarssyni, sem skrifaði "Fuck you rapist bastard“ á mynd af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×