Innlent

Vilja þrefalda landeldi á laxi í Þorlákshöfn

Heimir Már Pétursson skrifar
Fyrirhugað fimm þúsund tonna landeldi á laxi í Þorlákshöfn mun skapa fimmtíu bein störf. Áætlanir Landeldis ehf. eru nú í umhverfismati og áætla eigendur að framkvæmdir geti hafist eftir rúmt ár ef allt gengur að óskum.

„Við getum reiknað með því að framkvæmdir hefjist á fyrri hluta næsta árs sem er eðlilegur tími vegna þess að umhverfismatið tekur tíma, við þurfum að klára það fram að haustmánuðum og fá svo leyfi fyrir þennan stað,“ segir Ingólfur Snorrason, stjórnarformaður Landeldis ehf. sem kynnti áformin.

Hvað gætu margir hugsanlega fengið vinnu við þetta ef allt gengur upp?

„Við erum að tala um eitthvað um fimmtíu störf sem eru bein störf. Tengd störf eru um 25.“

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra var á kynningarfundinum og lýst honum vel á hugmyndirnar.

„Jájá, hugmyndin er skemmtileg og uppbyggileg. Það er ánægjulegt að sjá hvernig menn eru að vinna úr þeim tækifærum og hugmyndum sem að uppi eru. Ég vil sömuleiðis leggja áherslu á það að kynningin á þessum áformum hér er til fyrirmyndar. Það að fara með þetta hér inn í þetta samfélag á þessu stigi málsins er mjög gott og gefur öllum færi á því að segja skoðun sína.,“ segir Kristján Þór.

Þið ætlið að búa til umhverfisvæna vöru í hágæðaflokki?

„Það er stefnan og hefur verið frá upphafi,“ segir Ingólfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×