Innlent

Reykvíkingar klofnir í afstöðu til nýja spítalans

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Næstum helmingur þeirra sem afstöðu taka í nýrri könnun telur að nýr spítali eigi ekki að rísa við Hringbraut.
Næstum helmingur þeirra sem afstöðu taka í nýrri könnun telur að nýr spítali eigi ekki að rísa við Hringbraut. VÍSIR/VILHELM
„Þetta kemur ekkert á óvart vegna þess að ég efast um að það sé nokkurt annað mál sem ég hef beitt mér fyrir í pólitík sem fær önnur eins viðbrögð og þetta mál,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.

Niðurstöður skoðanakönnunar sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu í byrjun vikunnar sýna að 47 prósent þeirra sem afstöðu taka telja að nýr Landspítali eigi ekki að rísa á núverandi stað við Hringbraut, en 39 prósent segja að spítalinn eigi að rísa við Hringbraut. Þá segjast 13 prósent vera hlutlaus í afstöðu sinni.

Andstaðan við að spítalinn rísi við Hringbraut er meiri meðal þeirra sem eru 50 ára og eldri en þeirra sem yngri eru. Andstaðan er líka meiri meðal karla en kvenna.

Sigmundur segir að sér finnist nokkrir aðrir staðir koma til greina, en hann hefur sjálfur áður nefnt Vífilsstaði.

„Keldnalandið hefur verið nefnt og mér finnst það góður kostur,“ segir Sigmundur og nefnir jafnframt Víðidal sem dæmi. „Aðalatriðið er að þetta sé staður sem hafi andrými og umferðartengingar sem henta,“ segir hann.

Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1.322 manns með lögheimili í Reykjavík þar til náðist í 800 samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 26. og 27. febrúar. Svarhlutfallið var 60,5 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. 90 prósent þeirra sem svöruðu tóku afstöðu til spurningarinnar. 


Tengdar fréttir

Sjálfstæðismenn bæta verulega við sig

Samfylkingin tapar næstum fimm prósentustigum frá kosningunum 2014 í nýrri könnun Fréttablaðsins og frettabladid.is, en Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig 10 prósentum frá 2014. Framboðslisti Viðreisnar í borginni verður kynntur innan

Meirihlutinn í borginni myndi halda

Samfylkingin, VG og Pír­atar myndu fá 12 menn kjörna samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og frettabladid.is. Sjálfstæðisflokkur stærstur. Hvorki Framsóknarflokkurinn né Björt framtíð fengju fulltrúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×