Sport

„Sáttur við þetta“

Telma Tómasson skrifar
Þórarinn Ragnarsson.
Þórarinn Ragnarsson. Vísir
Þórarinn Ragnarsson gerði gott mót í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum í Samskipahöllinni í gærkvöldi og hreppti silfur í keppni í fimmgangi á Hildingi frá Bergi. Hlaut Þórarinn 7.12 í meðaleinkunn í úrslitum og var jafn Sylvíu Sigurbjörnsdóttur í annað til þriðja sætið. Heppnin var með honum eftir að hlutkesti hafði verið varpað.

„Þetta var gaman, ég er sáttur við þetta. Það er alltaf eitthvað sem hægt er að gera betur, en ég reyni bara að gera það á eftir,“ sagði Þórarinn eftir forkeppnina.

Sjá má sýningu Þórarins í forkeppninni í meðfylgjandi myndskeiði, en bein útsending var frá mótinu á Stöð 2 sport.

Niðurstöður A-úrslita voru eftirfarandi:

1. Jakob Svavar Sigurðsson, Skýr frá Skálakoti - 7,55 stig

2. Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Héðinn Skúli frá Oddhóli - 7,12

3. Þórarinn Ragnarsson, Hildingur frá Bergi - 7,12

4. Teitur Árnason Sjóður, frá Kirkjubæ - 7,10

5. Viðar Ingólfsson, Óskahringur frá Miðási - 6,95

6. Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Þór frá Votumýri 2 - 6,69

Lið Þórarins, Hrímnir / Export hestar hlaut liðsskjöldinn að þessu sinni fyrir að hafa safnað flestum stigum í fimmgangskeppninni, en það kom tveimur knöpum í úrslit.

Staðan í liðakeppninni er eftirfarandi:

Auðsholtshjáleiga 132,5 stig

Gangmyllan 126,5

Top Reiter 125,5

Hrímnir/Export hestar 125,5

Lífland 122,5

Árbakki/Hestvit/Sumarliðabær 103

Ganghestar/Margrétarhof/Equitec 98,5

Oddhóll/Þjóðólfshagi/Efsta-Sel 66


Tengdar fréttir

„Þetta er alger snillingur“

Afreksknapinn Jakob Svavar Sigurðsson er á mikill siglingu í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum, virðist ósigrandi en hann vann keppni í fimmgangi í Samskipahöllinni í gærkvöldi á Skýr frá Skálakoti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×