Glamour

Kjólarnir sem við viljum sjá á Óskarnum

Ritstjórn skrifar
Gucci
Gucci Glamour/Getty
Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin hátíðleg á sunnudaginn og bíða margir spenntir eftir hátíðinni. Þó að kjólarnir séu ekki aðalatriði hátíðarinnar þá er alltaf gaman að sjá hverju stjörnurnar klæðast, og höfum við tekið saman nokkra kjóla sem við viljum gjarnan sjá á rauða dreglinum. 

Gucci, Chanel, Christian Dior og Valentino eru oft mjög áberandi á rauða dreglinum. Stjarnan Margot Robbie væri líkleg til að klæðast Gucci á sunnudaginn, en hún er tilnefnd fyrir leik sinn í kvikmyndinni I, Tonya. 



Hins vegar værum við til í að sjá töffarann Zoe Kravitz í kjólnum frá Chanel, hún myndi að sjálfsögðu bera hann mjög vel eins og flest annað. 

Hvort sem það er einhver þema, eða reglur um klæðnað eða litaval þá kemur það í ljós á rauða dreglinum. En það verður spennandi að sjá hvaða kjólar verða fyrir valinu, en hér fyrir neðan eru nokkrir sem væru fullkomnir fyrir tilefnið. 

Chanel
Jason Wu
Christian Dior
Givenchy
Alberta Ferretti
Valentino
Oscar De La Renta





×