Innlent

Segir ekki hægt að skýla sér bak við þekkingarleysi á vopnum

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG:
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG: vísir/stefán
Þingmaður Vinstri grænna segir ekki hægt að skýla sér bak við þekkingarleysi þegar kemur að vopnaflutningum með heimild íslenskra yfirvalda. Yfirvöld þurfi að kanna til hlítar hvers eðlis slíkir flutningar séu hverju sinni.

Í samtali við fjölmiðla í gær sagði Þórólfur Árnason forstjóri Samgöngustofu að engin vopn hefðu verið flutt til skilgreindra átakasvæða með heimild stofnunarinnar. Hins vegar hefur verið bent á að vopn sem flutt eru til Sádi Arabíu, líkt og Air Atlanta hefur gert með heimild stofnunarinnar, séu gjarnan flutt þaðan á átakasvæði í Sýrlandi og Jemen. Í samtali við hádegisfréttir Bylgjunnar sagði Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG og fyrsti varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, ekki duga að skoða einfaldlega hver fyrsti áfangastaður vopnanna sé. Skoða þurfi í þaula hvort hætta sé á að þau berist áfram á stríðssvæði.

„Ef það leikur einhver grunur á því að um sé að ræða flutninga til þeirra svæða þá ber ríkinu að stöðva leyfisveitingar á vopnaflutninga til þeirra ríkja sem halda svo áfram með vopn inn á þau svæði,“ segir Rósa Björk.

Ódýrt að skýla sér bak við skort á sérþekkingu

Í samtali við fréttastofu í gær kvaðst Þórólfur hvorki geta játað né neitað að einhver þeirra vopna sem flutt hafi verið með heimild íslenskra yfirvalda séu þess eðlis að fari gegn skuldbindingum ríkisins. Samgöngustofa búi ekki yfir vopnasérfræðingum sem geti grandskoðað slíkt. Rósa Björk segir slíkar skýringar duga skammt.

„Ef það er okkar afsökun fyrir því að fylgja ekki alþjóðasáttmálum og samningum þá held ég að það sé bara betra að samþykkja ekki leyfisbeiðnir um vopnaflutninga til svæða sem gætu brotið í bága við þessar ályktanir og alþjóðasamninga."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×