Fótbolti

Davide Astori látinn│Leikjum dagsins á Ítalíu frestað

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Davide Astori
Davide Astori vísir/getty
Þau hræðilegu tíðindi bárust frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Fiorentina í morgun að fyrirliði félagsins, ítalski varnarmaðurinn Davide Astori, væri látinn, 31 árs að aldri.

Hann fannst látinn á hótelherbergi sínu í morgun þar sem hann var ásamt liðsfélögum sínum að undirbúa sig fyrir leik gegn Udinese.

Astori hefur leikið með Fiorentina frá árinu 2015 en hann lék áður með Cagliari og Roma í ítölsku úrvalsdeildinni. Þá hefur hann leikið fjórtán landsleiki fyrir Ítalíu.

Fiorentina átti að mæta Emil Hallfreðssyni og félögum í Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í dag en leiknum hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Þá hefur öllum öðrum leikjum dagsins í ítalska boltanum verið frestað í kjölfar andlátsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×