Körfubolti

Ljóst hvaða lið komast í úrslitakeppnina eftir stórsigur Stjörnunnar

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
KR-ingar hafa orðið Íslandsmeistarar undanfarin fjögur ár og verða í sviðsljósinu þegar úrslitakeppnin hefst þennan veturinn
KR-ingar hafa orðið Íslandsmeistarar undanfarin fjögur ár og verða í sviðsljósinu þegar úrslitakeppnin hefst þennan veturinn vísir/andri marinó
Eftir leiki kvöldsins er ljóst hvaða lið fara í úrslitakeppnina í Domino's deild karla í körfubolta þrátt fyrir að lokaumferð deildarinnar eigi enn eftir að fara fram.

Fyrir leikina tvo sem fram fóru í kvöld átti Þór Þorlákshöfn enn möguleika á að stela síðasta sætinu í úrslitakeppninni en til þess hefði Stjarnan þurft að tapa síðustu tveimur leikjum sínum og Þórsarar að vinna sína.

Þór gerði sitt í gær þegar Þorlákshafnarbúar unnu nafna sína frá Akureyri, 70-76, fyrir norðan og svo þurftu þeir að treysta á Keflavík ynni Stjörnuna í Garðabænum í kvöld. Stjörnumenn vildu hins vegar ekki missa af úrslitakeppninni og flengdu andlausa Suðurnesjamenn í Ásgarði.

Þau úrslit þýða að Stjarnan verður með Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Haukum, ÍR, KR og Tindastóli í úrslitakeppninni en 8-liða úrslitin hefjast í næstu viku.

Fyrir lokaumferðina er staðan þannig að Haukar eru á toppnum, með tveggja stiga forskot á Tindastól og ÍR. Haukar standa því vel að vígi fyrir lokaumferðina en ÍR-ingar eiga þó enn möguleika á deildarmeistaratitlinum.

Staðan þegar 21 umferð er lokiðvísir/skjáskot
KR er í fjórða sætinu, tveimur stigum á eftir ÍR og Tindastól. Njarðvík og Grindavík eru jöfn að stigum í 5. og 6. sæti og aðeins tvö stig eru niður í Stjörnuna og svo Keflavík tveimur stigum þar á eftir í áttunda sætinu.

Þór Þorlákshöfn situr eftir með sárt ennið ásamt Valsmönnum, en bæði lið geta þó stætt sig af því að hafa haldið liði sínu í deildinni. Þór Akureyri og Höttur kveðja hins vegar úrvalsdeildina á fimmtudaginn.

Lokaumferð Domino's deildar karla, 8. mars klukkan 19:15:

Höttur - Njarðvík

Tindastóll - Stjarnan

Keflavík - ÍR

Haukar - Valur

Grindavík - Þór Ak.

Þór Þ. - KR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×