Innlent

Gunnar bæjar­stjóra­efni Sjálf­stæðis­manna í Garða­bæ

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gunnar Einarsson er bæjarstjóri Garðabæjar.
Gunnar Einarsson er bæjarstjóri Garðabæjar. vísir/anton brink
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ samþykkti í kvöld framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Fyrir fundinum lá tillaga uppstillingarnefndar að skipan framboðslistans og var hún samþykkt.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs, skipar 1. sæti listans en í tilkynningu segir að Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, sé oddviti listans og bæjarstjóraefni flokksins. Framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

 

1.    Áslaug Hulda Jónsdóttir forstöðumaður.

2.    Sigríður Hulda Jónsdóttir ráðgjafi.

3.    Sigurður Guðmundsson lögfræðingur.

4.    Gunnar Valur Gíslason verkfræðingur.

5.    Jóna Sæmundsdóttir lífeindafræðingur.

6.    Almar Guðmundsson hagfræðingur.

7.    Björg Fenger lögfræðingur.

8.    Gunnar Einarsson bæjarstjóri.

9.    Guðfinnur Sigurvinsson, stjórnsýslufræðingur.

10.    Stella Stefánsdóttir viðskiptafræðingur

11.    Kjartan Örn Sigurðsson framkvæmdastjóri

12.    Þorri Geir Rúnarsson háskólanemi.

13.    Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir menntaskólanemi

14.    Kristjana Sigursteinsdóttir kennari

15.    Bjarni Th. Bjarnason sveitastjóri.

16.    Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur

17.    Guðrún Jónsdóttir tannlæknir.

18.    Sigrún Gísladóttir fv. skólastjóri

19.    María Guðjónsdóttir lögfræðingur.

20.    Hrannar Bragi Eyjólfsson háskólanemi.

21.    Eiríkur K. Þorbjörnsson tæknifærðingur.

22.    Stefanía Magnúsdóttir formaður Félags eldri borgara í Garðabæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×