Bíó og sjónvarp

Aldrei færri horft á Óskarinn í sjónvarpi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mexíkóski leikstjórinn Guillermo del Toro með Óskarsstytturnar sínar tvær sem hann hlaut fyrir bestu mynd og bestu leikstjórn.
Mexíkóski leikstjórinn Guillermo del Toro með Óskarsstytturnar sínar tvær sem hann hlaut fyrir bestu mynd og bestu leikstjórn. vísir/getty
Aldrei hafa færri sjónvarpsáhorfendur horft á Óskarsverðlaunin í sjónvarpi heldur en í ár. 26,5 milljónir manna horfðu á verðlaunaafhendinguna í sjónvarpi í Bandaríkjunum en inni í þeirri tölu eru ekki þeir sem horfðu á útsendinguna í gegnum netið í tölvu, spjaldtölvu eða síma.

Fyrirtækið Nielsen tekur tölurnar saman fyrir ABC sem sýnir beint frá Óskarnum. Fækkun sjónvarpsáhorfenda milli ára nemur 20 prósentum að því er fram kemur í frétt AP þar sem um 33 milljónir bandarískra áhorfenda sáu Óskarinn í fyrra.

Þetta er í fyrsta sinn sem áhorfstölurnar fara niður fyrir 30 milljónir en Nielsen hefur mælt áhorfið á Óskarinn í Bandaríkjunum síðan árið 1974. Aðeins eru fjögur ár frá því að 44 milljónir Bandaríkjamanna horfðu á Óskarinn og áður höfðu fæstir horft árið 2008 þegar myndin No Country for Old Men vann verðlaunin sem besta myndin.

Áhorfstölur Óskarsins eru oft tengdar við það hversu vinsælar stærstu myndir kvöldsins hafa verið í bandarískum kvikymyndahúsum. Þannig hefur besta myndin í ár, Shape of Water, aðeins halað inn 57,4 milljónum dollara í tekjur en flestir horfðu á Óskarsverðlaunin í sjónvarpi árið 1998 þegar Titanic var valin besta myndin.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×