Enski boltinn

Carragher segir Gylfa og félaga vera veika andlega

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson var tekinn af velli á móti Burnley.
Gylfi Þór Sigurðsson var tekinn af velli á móti Burnley. vísir/getty
Jamie Carragher, fyrrverandi miðvörður Liverpool sem nú starfar sem einn helsti sparkspekingur Sky Sports, segir Stóra Sam Allardyce rangan mann í röngu starfi hjá Everton þar sem hann stýrir Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum.

Everton lét Hollendinginn Ronald Koeman fara snemma á leiktíðinni þegar að liðið var óvænt í fallbaráttu eftir að eyða miklu í leikmenn síðasta sumar og réði inn Sam Allardyce sem aldrei hefur fallið úr úrvalsdeildinni.

Stóri Sam byrjaði ágætlega en nú vilja stuðningsmenn losna við hann eftir að liðið tapaði sjötta útileiknum í röð um síðustu helgi á móti Burnley. Liðið skapar sér varla færi og þá var baulað á Allardyce þegar að hann skipti Gylfa Þór Sigurðssyni af velli þegar að liðið þurfti mest á marki að halda.

„Þetta er farið að minna mig á þegar að Roy Hodgson stýrði Liverpool. Allardyce bara passar ekki í starfið,“ sagði Carragher í Monday Night Football á Sky Sports í gærkvöldi.

„Allardyce virðist hafa átt að gera tvennt þegar að hann var ráðinn; halda Everton uppi og sýna að hann er meira en slökkviliðsmaður. Getur hann svo áfram verið stjóri Everton á næstu leiktíð og sýnt að hann getur gert meira en bara haldið liðum uppi? Hann er ekki að sýna það þessa stundina.“

„Stuðningsmennirnir vildu ekki fá hann. Þeir litu á hann sem mann sem stýrir Sunderland eða Crystal Palace. Hann stýrir liðum í botnbaráttu. Everton lítur öðruvísi á sig. Þetta er lið sem hefur verið að berjast um Evrópusæti,“ sagði Carragher.

Þrátt fyrir að eyða fúlgum fjár í leikmannakaup finnst Carragher lítið til gæða Everton-liðsins koma. Það er þó meira í gangi þarna en bara lítil gæði.

„Liðið er ekki næstum því nógu gott en það er augljóst að leikmennirnir eru veikir andlega þegar að gengið er svona. Það er ekki hægt að lýsa þessu öðruvísi,“ sagði Jamie Carragher.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×