Innlent

Telur að hún hafi stuðning þingsins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigríður Á. Andersend, dómsmálaráðherra, fagnar því að geta rætt störf sín. Komin er vantrauststillaga á hana vegna Landsréttarmálsins.
Sigríður Á. Andersend, dómsmálaráðherra, fagnar því að geta rætt störf sín. Komin er vantrauststillaga á hana vegna Landsréttarmálsins. VISIR/ANTON BRINK

Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, segist ávallt fagna því að geta rætt sín störf en Samfylkingin og Píratar hafa lagt fram vantrauststillögu á ráðherrann vegna Landsréttarmálsins. Sigríður kveðst ekki hafa áhyggjur af því að hún hafi ekki stuðning þingsins. Hún segir það ekki koma sér á óvart að vantrauststillagan sé komin fram.

„Nei, menn eru nú búnir að vera að tala um þetta í hálft ár og ég skil nú ekki af hverju menn lögðu þetta ekki fram á síðasta kjörtímabili,“ segir Sigríður.

Ekki er algengt að lagðar séu fram vantrauststillögur á einstaka ráðherra heldur frekar á ríkisstjórnir. Sigríður segir það aldrei léttvægt þegar slíkar tillögur komi fram, hvort sem það er á ríkisstjórn eða einstaka ráðherra.

Sjá einnig:Þingmenn taki afstöðu hvort þeir treysti dómsmálaráðherra eða ekki

„Í því ljósi verður þessari tillögu auðvitað svarað af fullri festu og tilhlýðilegum alvarleika,“ segir Sigríður.

 

Fari það svo að allir þingmenn stjórnarandstöðunnar styðji tillöguna þurfa fjórir þingmenn stjórnarflokkanna að styðja hana einnig eigi hún að fá samþykkt þingsins. Sigríður gerir ráð fyrir stuðningi þingsins í málinu.

„Ekkert síður en ég finn fyrir stuðningi utan þings hjá almenningi sem ég hef strax orðið vör við í morgun.“

Fyrir liggur að tveir þingmenn VG studdu ekki stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, þau Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Aðspurð hvort hún hafi ekki áhyggjur af mögulegum „villiköttum“ innan raða Vinstri grænna svarar Sigríður neitandi.

„Nei, ég hef engar áhyggjur af því að ég hafi ekki stuðning þingsins.“

Óvíst er hvort tillagan verði tekin fyrir á þingi í dag en hefð er fyrir því að vantrauststillögur séu teknar fyrir á dagskrá við fyrsta tækifæri.


Tengdar fréttir

Katrín ber fullt traust til Sigríðar Andersen

Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag en þar ræddu þingkonurnar Helga Vala Helgadóttir, Samfylkingunni, og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Pírötum, málefni Landsréttar við forsætisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×