Lífið

Óskarinn sagði nei við þessari hugmynd Lonely Island

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta eru þrír miklir meistarar sem hafa framleitt mörg frábær lög.
Þetta eru þrír miklir meistarar sem hafa framleitt mörg frábær lög.
Gríngengið Lonely Island getur ekki birt myndband á Youtube án þess að milljónir manna horfi á það.

Forsvarsmenn Óskarsins fóru þess á leit við hópinn að þeir myndu búa til lag og myndband fyrir nítugustu Óskarsverðlaunahátíðina.

Andy Samberg, Jorma Taccone og Akiva Schaffer eru mennirnir á bakvið hópinn og tóku þeir sinn tíma í svara óskarsverðlaunamönnum. Svo fór að hugmyndin þótti of dýr og ómöguleg í framkvæmd.

Þannig að þeir bjuggu til myndband sem sýnir hugmyndina þeirra í grófum dráttum, eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×