Handbolti

Hrafnhildur las sinn gamla læriföður eins og opna bók

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hrafnhildur Skúladóttir, þjálfari kvennaliðs ÍBV í handbolta, mætir sínum gamla læriföður, Stefáni Arnarsyni, á fimmtudaginn þegar að Eyjakonur mæta Íslandsmeisturum Fram í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins.

Hrafnhildur og Stefán voru sigursæl saman hjá Val þegar hún var fyrirliði liðsins og Stefán þjálfari þess. Saman fögnuðu þau bikarnum þrjú ár í röð frá 2012-2014. Stefán er mikill refur en það mun reynast honum þrautin þyngri að taka Hrafnhildi og hennar stelpur á taugum enda þekkir hún sinn gamla læriföður ansi vel.

„Ég þekki hann næstum því betur en hann sjálfur. Ég veit nákvæmlega hvernig hann hugsar og hann reynir allt til að gera okkur að stóra liðinu. Honum mun ekki takast það. Kannski nær hann að blekkja sjálfan sig en engan annan,“ segir Hrafnhildur.

Fyrrverandi landsliðsfyrirliðinn veit ekki nákvæmlega við hverju hún á að búast í undanúrslitaleiknum, en eitthvað verður það sem Stefán kemur á óvart með.

„Það er líklegt að þær byrji í 6-0 en hann getur fundið upp á öllum andskotanum og farið í eitthvað bara. Maður þarf að vera svolítið undirbúin undir allt en það er líka það skemmtilega við þetta,“ segir hún.

Hrafnhildur laug engu þegar hún sagðist þekkja Stefán betur en handarbakið á sér. Þjálfari Íslandsmeistaranna var ekki lengi að setja pressuna yfir á Eyjakonur sem hafa ekki spilað úrslitaleik eða úrslitaseríu um titil í sex ár.

„Eyjaliðið er ótrúlega sterkt. Þegar það eru þrír útlendingar í liðinu er bara titill og ekkert annað í boði að mér finnst,“ segir Stefán.

„Fyrir utan þessa þrjá útlendinga þá er Ester öflug, liðið er með tvo landsliðsmarkverði og tvo frábæra hornamenn. Þetta eru allt mjög sterkir leikmenn. Svo má ekki gleyma því að þær hafa ekki tapað leik á árinu þannig að þær eru sigurstranglegri,“ segir hann, en eru Íslandsmeistararnir ekki sigurstranglegri? „Ekki í bikarkeppninni,“ segir Stefán Arnarson.

Alla fréttina úr Sportpakkanum á Stöð 2 má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×