Sport

Sjáðu blóðið flæða þegar þessi rosalegi kraftajötunn neitaði hreinlega að gefast upp

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mikhail Shivlyakov.
Mikhail Shivlyakov. Rogue Fitness á Youtube
Rússinn Mikhail Shivlyakov var einum sinni í rússneska hernum en núna keppir hann á hinum ýmsu kraftamótum út um allan heim.

Hann þurfti á sínum tíma að sýna mikla hörku í hernum og hann er greinilega maður sem kallar ekki allt ömmu sína.

Mikhail Shivlyakov tók þátt í kraftamóti Arnold Schwarzenegger á dögunum og hann ætlaði ekki að gefast upp þótt ein lyfta reyndi mikið á hann.





Shivlyakov fékk nefnilega það verkefni að lyfta 426 kílóum í réttstöðulyftu og útkoman var mikið sjónarspil.

Mikhail Shivlyakov ætlaði ekki að hafa stöngina upp en neitaði að gefast upp. Það kostaði rosaleg átök sem endaði með að blóðið flæddi út um nasaholurnar hjá þessum rosalega Rússa.

Kynnirinn kallaði eftir að því að þyrfti að þrífa lyftingasvæðið eftir kappann og Mikhail Shivlyakov þurkaði vandræðalega blóðið framan úr sér. Lyftan var hinsvegar gild þökk sé því að kappinn neitaði hreinlega að gefast upp.

Það má sjá þessa ótrúlegu lyftu hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×