Glamour

Frá París til Reykjavíkur

Ritstjórn skrifar
Okkur vantar oft svolítinn innblástur fyrir fataskápinn þegar að ný árstíð tekur við. Þó að hitinn sé ekki enn nálægur, þá getum við samt klætt okkur í vorlitina. 

Gallaefni er alltaf klassískt, og gaman að sjá hvernig hin franska Caroline De Maigret klæddi sig á tískuvikunni í París. Fáum hugmyndir!

Gallabuxurnar og gallajakkinn eru frá BLANCHE og fæst í Húrra Reykjavík. BLANCHE er nýtt merki hér á landi og okkur líst vel á.

Silfurleðurjakkinn er frá Golden Goose Deluxe Brand og fæst á Net-a-Porter.

Hvíti stuttermabolurinn er úr Zöru, en það verða allir að eiga hvítan stuttermabol. 

Skórnir eru frá Vic Matie og fást í 38 Þrep, og ljósbrúni liturinn fer vel við gallabuxur. 

Glamour/Getty





×