Handbolti

Axel velur einn nýliða í landsliðshópinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Díana Dögg fær sitt fyrsta tækifæri með landsliðinu enda leikið vel með Valskonum í vetur.
Díana Dögg fær sitt fyrsta tækifæri með landsliðinu enda leikið vel með Valskonum í vetur. vísir/eyþór
Axel Stefánsson, þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta, valdi í dag sextán manna hóp fyrir leikina tvo í undankeppni EM síðar í mánuðinum.

Hópurinn kemur saman í Reykjavík og hefur æfingar þann 18. mars. Fyrri leikurinn í törninni er heimaleikur gegn Slóveníu þann 21. mars. Íslenska liðið mætir svo Slóvenum ytra fjórum dögum síðar.

Ísland er í neðsta sæti síns riðils eftir tvær umferðir en báðir leikir liðsins hafa tapast.

Valskonan Díana Dögg Magnúsdóttir er eini nýliðinn í hópnum að þessu sinni. Það er aftur á móti ekki pláss fyrir Þóreyju Önnu Ásgeirsdóttir í hópnum að þessu sinni. Arna Sif Pálsdóttir er reynslumesti leikmaðurinn en hún hefur spilað 131 landsleik.

Karen Knútsdóttir er komin aftur eftir meiðsli. Félagi hennar í Fram, Ragnheiður Júlíusdóttir, er einnig í hópnum en hún gaf ekki kost á sér í síðasta verkefni.

Hópurinn:

Arna Sif Pálsdóttir, Debreceni DVSC

Birna Berg Haraldsdóttir, Aarhus United

Díana Dögg Magnúsdóttir, Valur

Ester Óskarsdóttir, ÍBV

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Haukar

Eva Björk Davíðsdóttir, Ajax Köbenhavn

Guðný Jenný Ásmundsdóttir, ÍBV

Hafdís Renötudóttir, SönderjyskE

Helena Rut Örvarsdóttir, Byåsen

Hildigunnur Einarsdóttir, Hypo

Karen Knútsdóttir, Fram

Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss

Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram

Stefanía Theodórsdóttir, Stjarnan

Thea Imani Sturludóttir, Volda

Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram




Fleiri fréttir

Sjá meira


×