Viðskipti innlent

Hrafn nýr framkvæmdarstjóri Sendiráðsins

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hrafn Ingvarsson tekur við starfinu af Orra Guðjónssyni.
Hrafn Ingvarsson tekur við starfinu af Orra Guðjónssyni. Sendiráðið
Hugbúnaðarhúsið Sendiráðið hefur ráðið Hrafn Ingvarsson sem nýjan framkvæmdarstjóra fyrirtækisins. Hrafn tekur við starfinu af Orra Guðjónssyni sem er annar af stofnendum Sendiráðsins. Hrafn gengdi áður stöðu framkvæmdastjóra vörusviðs hjá Novomatic Lottery Solutions frá árinu 2016 en fyrir það vann hann að hugbúnaðarþróun hjá Íslandspósti.

Hrafn er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann er sagður í tilkynningu frá Sendiráðinu vera með víðtæka reynslu af ýmis konar verkefnum og ráðstefnum og er til að mynda einn af upphafsaðilum Product Tank á Íslandi, sem er vettvangur fyrir fagaðila til að deila þekkingu um vöruþróun í hugbúnaðargerð.

Fram kemur í sömu tilkynningu að Hrafni muni stýra upp­bygg­ingu viðskipta­tengsla og viðskiptaþró­un­ar innan fyrirtækisins og vinna að því að auka enn frekar þjónustu í stafrænni vöruþróun hjá núverandi og tilvonandi samstarfsaðilum.

Haft er eftir Hrafni að undanfarin ár hafi hraðar stafrænar breytingar átt sér stað sem skapað hafa mörg tækifæri. Segir hann jafnframt að honum þyki spennandi að leiða Sendiráðið í þeirri vegferð. 

„Sendiráðið er með góðan grunn og frábæra starfsmenn með mikla tækniþekkingu sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni. Við höfum vaxið mikið að undanförnu og því höfum við bætt við starfsfólki til að geta tekið að okkur fleiri verkefni og þannig stækkað viðskiptavinahóp okkar. Við lítum því á það sem spennandi áskorun,“ segir Hrafn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×