Lífið

Kate Hudson þráir að komast aftur til Íslands

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kate Hudson fyrr á þessu ári.
Kate Hudson fyrr á þessu ári. vísir/getty
Bandaríska leikkonan Kate Hudson var mjög ánægð með heimsókn sína til Íslands í lok síðasta árs. Hudson var hér á landi til að taka upp auglýsingar fyrir snyrtivörufyrirtækið La mer.

Á meðan dvöl hennar stóð talaði hún fallega um landið og náttúruna en svo virðist sem þessi heimsfræga leikkona sakni Íslands, ef marka má nýjustu færslu hennar á Instagram.

Þar segir hún einfaldlega: „Farið með mig aftur til Íslands,“ og birtir í leiðinni myndband úr auglýsingunni.

Kate Hudson skaust fyrst upp á stjörnuhimininn með hlutverki sínu í kvikmyndinni Almoust Famous en hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í myndinni. Þá hefur hún farið með hlutverk í töluverðum fjölda gamanmynda með rómantísku ívafi en þar ber helst að nefna How to Lose a Guy in 10 Days, You, Me and Dupree og Fool‘s Gold.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×