Viðskipti erlent

Kína og Evrópa vara Trump við afleiðingum viðskiptastríðs

Kjartan Kjartansson skrifar
Stáliðnaðarmaður í Kína. Verndartollunum er meðal annars ætlað að rétta af ójöfnuð í vöruskiptum Bandaríkjanna við Kína.
Stáliðnaðarmaður í Kína. Verndartollunum er meðal annars ætlað að rétta af ójöfnuð í vöruskiptum Bandaríkjanna við Kína. Vísir/AFP
Búist er við því að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti formlega í dag um verndartolla á stál og ál sem hann boðaði í síðustu viku. Ráðamenn í Evrópusambandinu og í Kína vara Trump við því að þeir muni bregðast hart við tollunum og svara í sömu mynt.

Trump lýsti því skyndilega yfir í síðustu viku að hann ætlaði að leggja 25% toll á innflutt stál og 10% á ál. Grundvöllur tollana er niðurstaða skoðunar viðskiptaráðuneytisins um að innflutningurinn ógni þjóðaröryggi Bandaríkjanna.

Fulltrúar stál- og áliðnaðarins í Bandaríkjumum hafa verið boðaðir í Hvíta húsið í dag fyrir tilkynningu um verndartollana. Enn er þó mjög á reyki hvort tollarnir verði þeir sömu og Trump hefur áður lýst eða hvort að náin viðskiptalönd eins og Kanada og Mexíkó fái undanþágur frá þeim.

Boðaðir tollar hafa ekki farið vel í leiðtoga annarra þjóða og jafnvel ekki innanlands hjá mörgum félögum Trump í Repúblikanaflokknum. Innan Evrópusambandsins hefur meðal annars verið rætt um toll á bandarískar vörur sem yrði sérsniðnir til að koma illa við heimaríki leiðtoga repúblikana, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

„Ef Donald Trump grípur til þessara aðgerða í kvöld erum við með heilt vopnabúr sem við getum notað til að svara,“ segir Pierre Moscovici, efnahagsmálastjóri Evrópusambandsins.

Wang Yi, fjármálaráðherra Kína, segir að sagan sýni að viðskiptastríð séu ekki rétta leiðin til að leysa vandamál. Bandaríkjamenn og Kínverjar þurfi ekki vera andstæðingar.

„Afleiðingin verður aðeins skaðleg,“ segir Yi.

Kröfu Trump skeikaði um 99 milljarða dollara

Trump hefur sakað Kínverjar um að grafa undan bandarískum iðnaði og störfum. Því vill hann takmarka innflutning á ódýrum vörum frá Kína. Í gær krafðist hann þess í tísti að kínversk stjórnvöld settu saman áætlun um hvernig viðskiptahalli Bandaríkjanna við Kína gæti minnkað um milljarð dollara.

Sú upphæð kom sérfræðingum nokkuð á óvart enda er hún afar lágt hlutfall af vöruskiptajöfnuði sem var neikvæður um 375 milljarðara dollara fyrir Bandaríkin í fyrra. Bandarískir embættismenn segja Wall Street Journal að Trump hafi í raun átt við 100 milljarða dollara.

Gary Cohn, viðskiptaráðgjafi Trump, tilkynnti að hann myndi láta af störfum eftir að Trump ákvað að leggja verndartollana á.

Mikil ringulreið ríkti í Hvíta húsinu áður en Trump tilkynnti um ákvörðun sína í síðustu viku. Embættismenn vissu ekki hvort af tilkynningunni yrði eða af efni hennar. Þá var Trump sagður hafa ákveðið að leggja tollana á vegna þess að hann var reiður yfir röð neikvæðra frétta um ríkisstjórn hans.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×